Verðbólga breytir kauphegðun í Bretlandi
Vaxandi verðbólga hefur breytt innkaupavenjum neytenda í Bretlandi, samkvæmt nýrri könnun frá Pricer. Rúmlega fjórðungur neytenda kaupir nú einungis matvörur í tilboði, og þá sérstaklega yngri kynslóðirnar, eins og „millennials“ og „Gen Z“. Neytendur sækjast í meira mæli eftir afsláttarvörum og versla á fleiri stöðum til að finna bestu tilboðin. Einnig hefur notkun á forritum eins og „Too Good To Go“, sem minnka matarsóun, aukist til muna. Þessar breytingar sýna áframhaldandi viðkvæmni fyrir verði þrátt fyrir að verðbólga fari að hjaðna.
Nánar má lesa um þetta hér.